Bráðabirgðaútgáfa.

156. löggjafarþing — 65. fundur,  19. júní 2025.

veiðigjald.

351. mál
[15:38]
Horfa

Frsm. 2. minni hluta atvinnuvn. (Bergþór Ólason) (M) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið. Þetta hluti nefndarálits meiri hluta hv. nefndar er raunar svo galinn að mínu mati að ég gaf honum sérstakt pláss í nefndaráliti mínu til að draga fram þau sjónarmið sem þarna eru reifuð. Þetta eru auðvitað fyrirtæki sem eru í veikari stöðu rekstrarlega séð í dag. Þau munu ekki borga reikninga sína með von fulltrúa í meiri hluta atvinnuveganefndar í dag þess efnis að þau lifi þetta af eða von um það að ráðuneytið fylgist með hversu illa þetta gengur fram og grípi þá inn í. Þá erum við komin inn í enn eitt ríkisstyrkjaapparatið, sem er kannski markmiðið; að gera þetta að einhverju Evrópusambandsríkisstyrkjaapparati allt saman, sjávarútveginn hérna heima.

En ég þakka hv. þingmanni fyrir að vekja athygli á þessari stórundarlegu málsgrein. Það er ekki hægt að kalla hana neitt annað. Ég hef hreinlega ekki áttað mig enn á hvernig svona leirburður endar inni í nefndaráliti meiri hluta. Var bara enginn sem sagði: Nei, nei, við getum ekki sagt þetta. Þetta er bara kjánalegt fyrir okkur. Þetta dregur fram það sjónarmið að við höfum ekki trú á því sem við erum að gera. Það er það sem þetta segir. Heyrðu, ráðuneytið mun nú fylgjast með hversu illa þetta fer. Þetta er bara sama og þegar menn klúðruðu hérna leigubílalögunum fyrir korteri síðan. Þá komu menn með galopin opin augun inn í þá vegferð að forklúðra því kerfi. Hérna bara birtist sama nálgun: Við bara berum þá von í brjósti að þetta fari ekki eins illa og reikna má með og svo bara ef það fer illa vonum við að ráðuneytið fylgist með og bregðist við. Við skulum bara sleppa þessu. Það er miklu betra. Leyfum bara þessari starfsemi, þessari grundvallarstoð í íslensku efnahagslífi að vaxa og dafna og styrkjast áfram. Það er leiðin til að stækka skattsporið og ýta undir það að við búum hér í sterkara samfélagi, ekki þetta. Með von um að fyrirtæki muni rétta úr kútnum, gefist svigrúm til þess? Sleppið því bara taka af þeim svigrúmið. Það er miklu hagfelldara.