veiðigjald.
Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni svarið. Mig langar til að halda áfram á sömu slóðum og lesa fyrir hv. þingmann, með leyfi forseta:
„Er það mat meiri hlutans að sanngjarnt og réttlátt gjald af nýtingu sameiginlegra auðlinda sé ein grundvallarforsenda þess að búa ríkinu úrræði og slagkraft til að bregðast við þeim áskorunum sem hagræðing fyrirtækja kann að leiða af sér, m.a. fyrir sjávarútvegsbyggðir, hvort sem það verður gert á grundvelli nýsköpunar í atvinnurekstri, atvinnuuppbyggingar almennt eða með bættri byggðastefnu.“
Þarna er meiri hlutinn í rauninni að láta vita af því að ef samþjöppunin verður með þeim hætti að byggðir munu verða hart úti þá ætla þau nota þá fjármuni sem þau eru að taka út úr greininni til að styrkja þessar byggðir. Væri ekki bara einfaldlega skynsamlegra að skilja þetta eftir hjá byggðunum?