Bráðabirgðaútgáfa.

156. löggjafarþing — 65. fundur,  19. júní 2025.

veiðigjald.

351. mál
[15:41]
Horfa

Frsm. 2. minni hluta atvinnuvn. (Bergþór Ólason) (M) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið. Ég var auðvitað allt of linur þegar ég sagði hér áðan að það væri vinstri slikja yfir þessari ríkisstjórn. Þetta er auðvitað bara kommúnismi. Þetta er bara beinlínis verið að leiða það út að það eigi að taka fjármuni af þessum fyrirtækjum til að ráðstafa þeim síðan aftur til að bregðast við áhrifum af málinu. Þetta er svo galið að það tekur ekki nokkru tali. Og þessir peningar, þeir verða ekki notaðir til að laga vegi úti á landi, það verður ekki þannig, ef það á að nota þá í að bregðast við áhrifum málsins. Hvaða vitleysu erum við lent í hérna, hv. þm. Jón Gnarr? (JGnarr: Heyr, heyr.) [Hlátur í þingsal.] Ef málið væri ekki svona alvarlegt þá væri ég auðvitað hlæjandi hérna með hv. þingmanni sem sér auðvitað spaugilegu hliðina á þessu, eðlilega. En þetta er einhvern veginn allt saman alveg húrrandi klikkað sem er verið að leggja á borð fyrir okkur, (Gripið fram í.) að það eigi að taka af fyrirtækjum landsbyggðarinnar pening og færa inn í ríkissjóð til að bregðast við afleiddum áhrifum frumvarpsins. Þetta er ekki boðlegt.