veiðigjald.
Herra forseti. Þetta er hárrétt hjá hv. þingmanni sem ég þakka fyrir andsvarið. Þetta er nefnilega grundvöllur málsins. Þetta er sökkullinn, grundvöllurinn, fótstykkið, hvað við viljum kalla það. Ef þetta bilar þá hrynur allt málið. Og þetta er það sem blasir við eftir komu norsks sérfræðings, sem var vísað til með svona ríflegri hætti en verkefnið sem honum var fengið, svo ég orði það nú varlega, í greinargerð frumvarpsins. Þetta er auðvitað bara það sem blasir við bara út frá skynsemisskoðun þegar menn skoða hvernig verðlagningu er háttað í Noregi. Það getur ekki verið neinn grundvöllur skattlagningar hér á Íslandi. Það væri bara álíka vitlaust og að leggja á fasteignagjöld á Raufarhöfn á grundvelli íbúðaverðs í Ósló. Það dytti engum til hugar. Þess vegna er ég enn jafn hissa og í upphafi að stjórnarliðar séu enn að verja þessa vitleysisnálgun. Þetta er ekki grundvöllur einhvers sem mætti kalla rétt verð eða markaðsverð. Það er það bara alls ekki.