veiðigjald.
Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið. Þetta er sennilega einhver svona vondur kokteill tilfinninga sem orsakar þetta. En mér hefur virst sem svo að svona heyr, heyr-köll hjarðarinnar ágerist eftir því sem þeim líður ver með mál hverju sinni. Svona taugaveiklunarhlátur virðist ágerast eftir því sem mönnum líður ver með mál eða menn hafa farið meira halloka í andsvörum þar á undan. Ég held að það sem skipti mestu máli sé að stjórnarliðar mæti hér og tali fyrir málinu, ekki út frá einhverjum talpunktum sem einhver formaði fyrir þá heldur skoðun sinni, hvaða áhrif þetta hefur til að mynda á kjördæmi og nærsamfélög landsbyggðarþingmanna. Talið fyrir því, kæru þingmenn, og förum í andsvör um þá hluti, því að undirliggjandi áhrif þess frumvarps sem hér liggur fyrir, þrátt fyrir breytingartillögur meiri hluta atvinnuveganefndar, eru svo grafalvarleg að þessa ákvörðun þarf að taka með opin augun, galopin augun þannig að þingmenn séu ekki í þeirri stöðu eftir 2–3 ár að segja: Ja, skrambinn, við sáum þetta bara ekki fyrir. (Forseti hringir.) Á þeim tíma þegar þetta verður samþykkt, verði það niðurstaðan, þá verður búið að leiða þetta allt saman fram og menn munu taka þessa vondu ákvörðun, (Forseti hringir.) sérstaklega fyrir landsbyggðina, með galopin augun.