Bráðabirgðaútgáfa.

156. löggjafarþing — 65. fundur,  19. júní 2025.

veiðigjald.

351. mál
[22:03]
Horfa

Frsm. 2. minni hluta atvinnuvn. (Bergþór Ólason) (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir prýðisgóða ræðu. Það er kannski þrennt sem mig langar til að koma inn á hér í fyrra andsvari, eða tvennt úr ræðu hv. þingmanns og þriðja atriðið svona kannski aðeins frá hlið, þó að inn á það hafi verið komið. Fyrst er það það sem snýr að losun gróðurhúsalofttegunda, grænum hvötum og þar fram eftir götunum. Hvort hv. þingmaður þekkir til með hvaða hætti þróun losunar sjávarútvegs í heild hefur verið undanfarin, ja, ætli það sé ekki skynsamlegt í þessu samhengi að horfa yfir lengri tíma þróun.

Í öðru lagi langar mig að spyrja hv. þingmann út frá sjónarmiðum sem hún setti fram í ræðu sinni varðandi það að það sé nauðsynlegt að tryggja og styðja við byggð í landinu, landið um kring, m.a. með því hvernig við stillum af kerfin okkar og þar á meðal auðvitað hið augljósa, sem er rekstrarumhverfi sjávarútvegsins. Hvort hv. þingmaður telur, miðað við þær umsagnir sem liggja fyrir frá sveitarfélögum og öðrum hagaðilum, að líklegt sé að vel takist til miðað við það hvernig málum er stillt upp í fyrirliggjandi frumvarpi og því nefndaráliti meiri hlutans sem nú liggur fyrir.

Svo kannski í lokin, ef tími er til í svari við fyrra andsvari, hugmyndir um þjóðarsjóð. Þær koma hér reglulega upp og ég get gengist við því að ég hef verið svona frekar efins á meðan skuldir þjóðarinnar eða öllu heldur líka vaxtakostnaður er jafn hár og raunin er. Hvort hv. þingmaður telji skynsamlegt að ganga til þessa verkefnis sem hún talar fyrir strax eða að ná tökum á útgjaldahluta vegna skulda ríkisins sem snýr þá, eins og ég segi, (Forseti hringir.) að háu vaxtastigi sem orsakar það að þó að skuldahlutfallið sé tiltölulega hóflegt í alþjóðlegu samhengi þá er vaxtakostnaður (Forseti hringir.) mjög hár sem hlutfall af heildarútgjöldum ríkissjóðs.

.