veiðigjald.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir mjög góðar spurningar. Ef við byrjum á hvernig þróunin hefur verið í sjávarútvegi þá hefur hún verið einmitt þannig að það hafa verið fjárfestingar í nýjum skipaflota sem hefur gert það að verkum að það hefur orðið olíusparnaður sem hefur dregið úr losun. Það er dæmi um ábata sem við njótum í sjálfu sér út frá loftslagsmálunum vegna þess að geirinn hefur verið að fjárfesta í nýjum skipum. Það er einmitt svona fjárfestingargeta sem við viljum passa að við séum að viðhalda í gegnum allar breytingar, af því að þær skipta samfélagið í heild sinni máli. Þær skipta líka þjóðarbúið máli. Ef við horfum bara núna á stöðuna á olíumörkuðum, 10% hækkun núna vegna deilna milli Ísraels og Íran, mikil óvissa á olíumörkuðum. Það mun koma til með að hafa áhrif líka á samkeppnishæfni okkar greinar. Þannig að það er alltaf svo nauðsynlegt að horfa á þetta stóra samhengi, sama hvort við erum að horfa á loftslagsmarkmiðin eða aðrar hreyfanlegar breytur í þessu umhverfi.
Varðandi stuðning og stöðu byggða og athugasemdir sveitarfélaga þá er þetta ein af þeim spurningum sem ég velti fram af því að hún er mikilvæg og það er ekki hægt að horfa fram hjá öllum þessum athugasemdum sem birtast frá sveitarfélögum hringinn í kringum landið. Við verðum m.a., í samhengi við gögn og greiningar, að vera að horfa á stofnanir eins og Byggðastofnun og aðrar stofnanir varðandi þetta mat og þá hvað það þýðir nákvæmlega.
Ég segi það aftur: Við erum að reyna að fá aukinn ábata af greininni en við verðum að skilja keðjuverkunina þannig að það sé þá hægt að (Forseti hringir.) bregðast við eða útfæra hluti þannig að við séum ekki að draga (Forseti hringir.) úr byggð í landinu. Við viljum að hún sé blómstrandi. Ég held við séum sammála um það.