veiðigjald.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir spurninguna. Ég ætla að byrja á spurningunni sem tengist samdrætti í losun og samkeppnishæfni. Já, það er mikilvægt að það sé hægt að fjárfesta í nýjum skipum. Það er mikilvægt út frá loftslagsmarkmiðunum. Það er líka mikilvægt út frá olíunotkun, sérstaklega þegar olíuverð flöktir, því að þetta er einn af okkar lykilgeirum og ég held það sé eitthvað sem við eigum að halda í þessari umræðu að auðvitað viljum við að það sé öflugur sjávarútvegur. Hann er leiðandi. Ég vona að hv. þingmaður hafi farið á sjávarútvegssýninguna í Barcelona eða Brussel eða annað slíkt. Við erum stórveldi í sjávarútvegi og við eigum að verja þá stöðu af því að hún gerir það líka að verkum að við getum verið að fá ábata af greininni. Þetta helst í hendur. Þetta er algjört „win–win“, ef svo má segja.
Þá komum við að þjóðarsjóðnum. (Forseti hringir.) Svarið er já, við eigum að setja á fót þjóðarsjóð, en jafnvel þó að staðan sé með þessum hætti, til að ná betur utan um samhengið á milli þess (Forseti hringir.) að vera að fá aukinn ábata og arð af auðlindunum og hvernig við erum að forgangsraða fjárfestingum. (Forseti hringir.) Það skiptir máli að þetta samhengi sé skýrara og við eigum að taka þetta skref strax.