veiðigjald.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Njáli Trausta Friðbertssyni fyrir ágæta ræðu. Það er auðvitað búið að vera svona nokkuð þéttur taktur í gegnum meðferð alls þessa máls að þeir sem leggja það fram og tala fyrir því hafa þurft að stíga til baka vegna leiðréttinga sem hafa komið fram á hinni meintu leiðréttingu. Ætli það sé ekki í þrígang búið að endurstilla tölurnar og maður verður alltaf að gefa sér að menn komist nær raunheimum í hverri atrennu. En það sem kannski sló mig verst framan af var það hversu einarðlega þeir sem töluðu fyrir málinu vörðu þær tölur sem lagðar höfðu verið fram, og voru gagnrýndar með mjög trúverðugum hætti, alveg frá fyrstu mínútu í raun. Það er hægt að rifja það upp að Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi treystu sér ekki til að leggja fram umsögn í samráðsgátt innan þess tímafrests sem þar stóð til boða, lögðu hana fram einhverjum dögum síðar og m.a. var ástæðan sú að það var það yfirgripsmikið verkefni að ná utan um þær tölur sem þeir sem gleggst þekktu til sáu strax að gátu ekki gengið upp.
Ég velti fyrir mér hvort hv. þingmaður, svona eftir þann tíma sem hv. þingmaður hefur verið hér inni á þingi í hinum ýmsu nefndum, muni eftir máli þar sem talnalegi grundvöllurinn, sem er auðvitað undirstaða málsins í raun, hafi verið jafn brogaður og raunin hefur verið í þessu máli. Sjálfur hef ég litið svo á að eðlilegt væri að frumvarpið yrði dregið til baka og ríkisstjórnin, teldi hún það skynsamlegt, myndi þá kom aftur fram með mál þessa efnis í haust, betur unnið og betur grundað. En man hv. þingmaður eftir jafn miklum skekkjum, grundvallarskekkjum, (Forseti hringir.) í máli sem er ekki bara hvaða mál sem er heldur að líkindum stærsta mál ríkisstjórnarinnar á þessu kjörtímabili?