Bráðabirgðaútgáfa.

156. löggjafarþing — 65. fundur,  19. júní 2025.

veiðigjald.

351. mál
[22:39]
Horfa

Njáll Trausti Friðbertsson (S) (andsvar):

Herra forseti. Ég vil byrja á að þakka hv. þm. Bergþóri Ólasyni fyrir fínar spurningar, fínt andsvar. Ég tek undir það að það sem hefur komið mikið á óvart í vinnslu þessa máls inni í hv. atvinnuveganefnd er tölurnar og tölulegi gagnagrunnurinn á bak við það sem er farið af stað með í þessa vegferð, hversu raunverulega þær hafa verið brogaðar. Þetta hefur bara verið mjög slæmt og ég man ekki eftir neinu máli þessi níu ár sem ég hef verið hér á þingi með áberandi hætti. Áður hef ég setið í fjögur ár í atvinnuveganefnd, verið hérna í fjárlaganefnd og í ýmsum nefndum, en þetta slær flest út sem ég hef séð áður. Þetta er nefnilega þannig að margt af því sem var varið hér hatrammlega þegar við byrjuðum að ræða þetta í þingsal þegar málið kom fram í óundirbúnum fyrirspurnum og í störfum þingsins í lok mars — þá var þetta mjög varið. Það var verið að verja þetta í fjölmiðlum, talnagrunninn og allt það sem var sett fram í málinu. Það hefur elst mjög illa, sú umræða sem var tekin hér um mánaðamótin apríl/maí af hálfu meiri hlutans, af hálfu ríkisstjórnarinnar. Ég bara hvet fólk og alla til að kynna sér þá umræðu sem var uppi þá í tengslum við þetta mál vegna þess að tímalínan, sem sá sem hér stendur hefur m.a. óskað eftir inni í atvinnuveganefnd, í þessu máli, hvernig það hefur þróast — það er mikilvægt að halda því öllu til haga; gögnunum og hvernig umræðan fór fram, þannig að við sjáum framþróunina yfir þessa mánuði sem við höfum verið að eiga við málið. Það var náttúrlega í samráðsgáttinni, þetta voru sex dagar ef ég man rétt, og SFS, lykilatriði sem umsagnaraðili, þau samtök töldu sér ekki fært að skila inn umsögn. (Forseti hringir.) Það náttúrlega segir ansi mikið um þennan þátt máls.