veiðigjald.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Sigurði Inga Jóhannssyni fyrir prýðisgóða ræðu. Í ljósi þess að hv. þingmaður var ráðherra sveitarstjórnarmála um nokkurra ára skeið langar mig að spyrja, í ljósi þess sem hv. þingmaður kom inn á í ræðu sinni, um þennan skort á lögbundnu áhrifamati hvað áhrif á sveitarfélög varðar. Það auðvitað stenst enga skynsemisskoðun það sem haldið hefur verið fram hér, að málið hafi ekki áhrif á sveitarfélög, m.a. með þeim rökum að þau séu ekki beinn greiðandi veiðigjaldanna. Þetta er einhver furðuútskýring en sumir fyrirsvarsmenn málsins hafa hengt sig á hana. Síðan kom hv. þingmaður réttilega inn á að nú bara beinlínis væri fyrir þinginu mál sem tæki á og svona herti á þessari skyldu sem er til mats á áhrifum sveitarfélaga og eykur svigrúm sveitarfélaga til að kalla eftir ítarlegri greiningum þegar við á með það einmitt í huga að menn séu ekki mörgum árum eftir lagabreytingu enn að kýtast um það hverjar raunverulegar grunnforsendur voru. Þannig að ef hv. þingmaður færi aðeins á dýptina hvað þetta varðar, bara út frá reynslu sinni úr ráðuneytinu af áhrifum lagasetningar hér á sveitarfélög án þess að þau séu kannski ávallt áætlaður beinn áhrifaðili en eru það samt augljóslega í raun.
Síðan velti ég fyrir mér varðandi gestakomur í nefnd sem var aðeins komið inn á hér áðan. Það hafa nú oft verið flókin mál, samgönguáætlun er auðvitað alltaf gríðarlega þung í gestakomum og meðförum nefndar. Man hæstv. ráðherra (Forseti hringir.) eftir því að nefnd hafi kveinkað sér með jafn áberandi hætti og nú er (Forseti hringir.) í atvinnuveganefnd yfir því að lykilgestir hafi ekki fengið að koma fyrir nefndina?