veiðigjald.
Virðulegur forseti. Ég heyri að hv. þingmaður hefur sömuleiðis heyrt ræðu hv. þm. Guðlaugs Þórs Þórðarsonar sem hélt því fram að núverandi ríkisstjórnarflokkar hefðu fundið upp hina fullkomnu skattaleið, íslensku leiðréttingarleiðina sem hefði bara engin áhrif á nokkurn skapaðan hlut, hvort sem hún væri 7.000–8.000 milljónir eða 12.000 milljónir eða þaðan af meira. Ég skal viðurkenna að þegar ég var barn þá las ég oft eitthvað um eilífðarvélar og fannst það hrífandi hugmynd. Ég man líka eftir sveitarfélagi í Danmörku sem fann upp einhverja ótrúlega vél þar sem það seldi alltaf alla hlutina frá sér og allir höfðu það býsna gott. Það voru drukkin dýrustu rauðvín, af dýrari gerðinni, á bæjarstjórnarfundum og eldri borgararnir bjuggu flestir á Tene eða þeim eyjum. Svo náttúrlega féll þetta allt saman, þessi spilaborg, og bæjarstjórinn var settur í fangelsi. Ég held að hann sé þar enn.