veiðigjald.
Herra forseti. Mig langar að halda áfram þar sem frá var horfið í ræðu minni fyrr í kvöld og fara yfir nefndarálit meiri hluta atvinnuveganefndar. Þar vil ég tína til bæði það sem mér finnst vera gott í því í nefndaráliti og einnig kannski draga fram það sem mér þykir ekki eins gott. Ég hlýt að endurtaka þau orð mín frá því fyrr í kvöld að ég ætla að leyfa mér að hrósa atvinnuveganefndinni. Þó að það hafi nú verið einhverjar róstur í henni, sem ég vil nú kenna kannski vinnuálagi um, þá tel ég að nefndin hafi verið mjög starfsöm og hún hafi afkastað miklu. Ef við bara horfum t.d. á þetta mál þá eru yfir 50 gestakomur sem nefndin sinnti og þótt það hafi kannski aðeins kastast í kekki með að ná inn fleiri gestum þá ætla ég samt að segja að nefndin hafi staðið sig vel. Ég veit að nefndarmenn hafa lagt mikið á sig, þeir hafa verið að lengja tíma fyrir nefndarfundi og mæta oftar og ég ætla að leyfa mér að hrósa aðilum fyrir það.
Í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar segir frá því að hún ætli að ná sínum árangri m.a. með mótun auðlindastefnu um sjálfbæra nýtingu og réttlát auðlindagjöld sem renni að hluta til nærsamfélagsins. Ég vil meina að þetta frumvarp sem er hér til 2. umræðu og þetta nefndarálit sem er hér til skoðunar sé að einhverju leyti afsprengi þessa loforðs eða þessara heitstrenginga stjórnarinnar. Og vil ég þá nefna að ég veit ekki hvað átt er við með að renna að hluta til nærsamfélagsins. Væri ekki nær að segja í rauninni að nærsamfélagið fengi þá réttlátan hlut frekar en að við værum að ræða um réttlát auðlindagjöld, að það væri þá réttmætur hlutur sem rynni til nærsamfélaganna? Ég get ekki séð að einhverjar tilviljanakenndar úthlutanir á vegabótum muni skera úr um hvað teljist vera nægilegt til að vera réttlátt í þeim efnum. Það verður áhugavert að fylgjast með því þegar ríkisstjórnin fær að glíma við það að setja fleiri auðlindir hér undir. Nú veit ég að það er frumvarp í vinnslu varðandi það hvernig menn ætla að hagnýta eða deila þeim arði sem verður til af orkuvinnslu, að því verði þá deilt að einhverju leyti á þau nærsamfélög þar sem orkan verður til og svo líka þar sem væntanlega flutningsmannvirki standa. Það verður áhugavert að fylgjast með því hvað muni teljast réttlát auðlindagjöld og hvernig hlutfallið verður til nærsamfélaganna eða hvort það verði þá sett í einhverja vegarspotta. Ég held að það verði sérstaklega athyglisvert þegar ein risastór auðlind, sem er einmitt hérna á suðvesturhorninu, sem er heitt vatn, verður tekin til skoðunar og menn reyna að finna sanngjarna og réttláta skiptingu á þeim verðmætum sem þar eru undir.
En svo að ég víki nú að frumvarpinu og nefndarálitinu þá vil ég nefna sérstaklega kannski það sem mér finnst jákvætt. Mér finnst nefndin hafa brugðist að nokkru leyti við áskorunum um að það sé rétt að auka í afsláttinn þannig að afsláttartilhögunin sem var áður þannig að það voru 9 milljónir, ef ég man rétt, afslátturinn varðandi allar tegundir, þá var niðurstaðan sú að breyta úr flötum 40% afslætti af 50 milljónum yfir í það að hafa afsláttinn 65% á fyrstu 15 milljónirnar og síðan 45% á næstu 55 milljónir þannig að heildarafslætti væri náð við 70 milljónir. Við höfum aðeins heyrt í aðilum í dag sem hafa verið að tjá sig um þessa afslætti og ég get alla vega staðfest að einhverjir aðilar, m.a. Óðinn Gestsson hjá Íslandssögu, hafa staðfest það í fjölmiðlum að þessi afsláttur muni ekki duga fyrir þá sem standa veikast í veiðum og vinnslu. Það verður áhugavert að sjá hvort brugðist verði eitthvað við þeirri niðurstöðu eða hvort menn ætli að láta þetta vera óbreytt.
Það er tvennt í þessu nefndaráliti sem mér finnst eiginlega bara stórskrýtið og mig langar, herra forseti, að lesa það upp hér með þínu leyfi:
„Með frumvarpinu er lagt til að veiðigjald verði reiknað út frá raunverulegu verðmæti afla, markaðsverði. Gjöld á þau verðmæti sem íslensk sjávarútvegsfyrirtæki skapa við vinnslu haldast óbreytt. Þau verða áfram 33% af hagnaði. Er það mat meiri hlutans að þær vinnslur sem starfa á traustum rekstrarlegum grundvelli muni gera það áfram. Þá er það von meiri hlutans að þær vinnslur þar sem rekstrarlegur grundvöllur hefur verið lakari muni rétta úr kútnum gefist svigrúm til þess. Meiri hlutinn ítrekar þó þá afstöðu sína að þær rekstrarlegu ákvarðanir sem sjávarútvegsfyrirtæki kunna að taka í framtíðinni eru ekki endilega háðar efni þessa frumvarps. Meiri hlutinn hvetur atvinnuvegaráðuneytið til að fylgjast vel með þróun mála og bregðast við ef þurfa þykir.“
Þetta þykir mér undarlegur texti og ég velti fyrir mér hvernig þetta á að virka í framkvæmd. Er það þá þannig að þegar fyrsta sjávarútvegsfyrirtækið, veiðar eða vinnsla, lendir í vandræðum þá muni ráðuneytið fylgjast með því, þá væntanlega í gegnum einhverjar tilkynningar frekar en að þeir séu að grípa inn í eftir að mögulega er búið að loka fyrirtækinu eða hreinlega ákveða að selja þá þau tæki sem það félag hefur yfir að ráða, hvort sem það er bátur eða annað?
Hér er svo, með leyfi forseta, enn þá skrýtnari texti, að mér finnst, og ég ætla að lesa hér:
„Það er eigi að síður svo að samþjöppun og hagræðing í sjávarútvegi hefur verið veruleg á síðustu áratugum. Kostnaður þess hefur að miklu fallið á hinar mörgu fjölbreyttu sjávarútvegsbyggðir landsins. Áskoranir þeirra byggða hafa verið verulegar og það hefur síst hjálpað að íslenska ríkinu hefur verið þröngur stakkur sniðinn þegar kemur að því að efla slíkar byggðir. Er það mat meiri hlutans að sanngjarnt og réttlátt gjald af nýtingu sameiginlegra auðlinda sé ein grundvallarforsenda þess að búa ríkinu úrræði og slagkraft til að bregðast við þeim áskorunum sem hagræðing fyrirtækja kann að leiða af sér, m.a. fyrir sjávarútvegsbyggðir, hvort sem það verður gert á grundvelli nýsköpunar í atvinnurekstri, atvinnuuppbyggingar almennt eða með bættri byggðastefnu.“
Herra forseti. Það er mjög sérstakt að setja á íþyngjandi skatt og ætla síðan að nota andlag þess skatts í að berja í brestina á því fyrirtæki sem þegar er farið á hausinn. Þetta finnst mér í rauninni órökrétt, herra forseti. — Ég sé að tíminn er búinn. Ég hef ekki náð að klára þetta þannig að ég bið virðulegan forseta að setja mig aftur á mælendaskrá.