156. löggjafarþing — 66. fundur,  20. júní 2025.

raforkukostnaður og rekstrarumhverfi fyrirtækja.

[10:31]
Horfa

Guðrún Hafsteinsdóttir (S):

Virðulegur forseti. Ný skýrsla Raforkueftirlitsins dregur upp grafalvarlega mynd af þróun raforkukostnaðar á Íslandi. Á aðeins fimm árum hefur raforkukostnaður almennra fyrirtækja hækkað um 24% að raunvirði eða 65% á verðlagi hvers árs. Hjá gagnaverum og álverum er hækkunin enn meiri og þessi þróun hefur samkvæmt skýrslunni þegar dregið úr samkeppnishæfni íslensks atvinnulífs. Þarna er ekki verið að fást við tilgátur eða huglægt mat heldur tölfræði frá opinberri stofnun. Samtök iðnaðarins hafa ítrekað bent á þessa þróun og tengt hana beint við kyrrstöðu í innviðauppbyggingu. Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri samtakanna, sagði nýverið: „Raforkuskortur er meginorsök verðhækkana og hefur verið dragbítur á samkeppnishæfni íslensks iðnaðar.“ Þetta eru stór orð og þau eiga við rök að styðjast. Þegar aðgangur að raforku verður bæði dýrari og ófyrirsjáanlegri veikjast rekstrarskilyrði fjölmargra fyrirtækja, ekki bara í stóriðju heldur einnig í nýsköpun, í landbúnaði og grænni atvinnustarfsemi. Verðbólguáhrif aukast, fjárfestingar dragast saman og hættan er sú að mikilvæg störf og tækifæri flytjist af landsbyggðinni eða jafnvel úr landi. Þó að skýrslan fjalli fyrst og fremst um þróun í raforkumálum þá snýst málið í grunninn um að verja íslenskt atvinnulíf og tryggja því sambærileg skilyrði og samkeppnisaðilum erlendis. Aðgangur að stöðugri sjálfbærri og hagkvæmri raforku er hluti af grunnstoðum atvinnustefnu okkar, ekki aðeins umhverfismál eða tæknileg útfærsla.

Því spyr ég hæstv. atvinnuvegaráðherra: Telur ráðherra ekki tímabært að stjórnvöld skoði skynsamlegar og markvissar leiðir til að mæta þessari þróun með því að einfalda regluverk, hraða uppbyggingu nauðsynlegra innviða og tryggja að íslenskt atvinnulíf búi við samkeppnishæf og fyrirsjáanleg skilyrði til framtíðar?