156. löggjafarþing — 66. fundur,  20. júní 2025.

raforkukostnaður og rekstrarumhverfi fyrirtækja.

[10:33]
Horfa

atvinnuvegaráðherra (Hanna Katrín Friðriksson) (V):

Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Guðrúnu Hafsteinsdóttur kærlega fyrir góða spurningu og góðar vangaveltur. Það er alveg ljóst að hér hefur verið þróun á verðlagi á raforkumarkaði undanfarin ár sem full ástæða er til að fylgjast með. Varðandi áhrifin á fyrirtækin og atvinnurekstur í landinu, sér í lagi þau fyrirtæki og þær atvinnugreinar sem hv. þingmaður nefnir, þá er kannski ágætt að halda því til haga að hvað varðar alþjóðlega samkeppni þá erum við enn með orkuverð töluvert lægra en þekkist í samkeppnislöndum okkar. Það breytir því ekki að þær ábendingar sem hv. þingmaður er með eru mjög góðar og mjög mikilvægar og þetta er nákvæmlega eitt af því sem þarf að hafa í huga þegar við tryggjum og eflum alþjóðlega samkeppnishæfni. Ég nefni í því tilliti það verkefni ríkisstjórnarinnar að leggja fram atvinnustefnu þar sem þetta m.a. er undir. Einföldun regluverks er þegar er farin af stað og er mjög mikilvægt verkefni í þessu tilliti, þ.e. samkeppnishæfninni, og síðan auðvitað uppbygging vanræktra innviða víðs vegar um landið sem ég held að við getum öll verið sammála um að er lykilatriði í því að tryggja samkeppnishæfni og verðmætasköpun í landinu, hringinn í kringum landið. Þannig að þetta eru bara gríðarleg verkefni. Eitt af því sem þar er undir er að fylgjast náið með þróun raforkuverðsins. Hvað varðar stórnotendur hér á landi þá er, eins og ég nefndi áðan, verðlag þrátt fyrir allt lægra en þekkist á okkar helstu samkeppnismörkuðum og svo líka að það hafa verið gerðir langtímasamningar sem gera það að verkum að það er tími til að bregðast við. En þetta er þróun sem þarf að fylgjast mjög grannt með og ég er sannfærð um það að hér í þessum þingsal, sama hvaðan þingmenn koma, þá erum við öll með það sameiginlega markmið að við ætlum að standa ekki bara vörð um íslenska samkeppnishæfni á alþjóðamarkaði heldur efla hana til muna.