156. löggjafarþing — 66. fundur,  20. júní 2025.

raforkukostnaður og rekstrarumhverfi fyrirtækja.

[10:35]
Horfa

Guðrún Hafsteinsdóttir (S):

Virðulegi forseti. Ég þakka ráðherra svarið og fagna því að hún viðurkenni að síhækkandi raforkukostnaður sé farinn að grafa undan samkeppnishæfni íslensks atvinnulífs og að bregðast þurfi við þeirri þróun. Það eru skynsamleg viðbrögð við alvarlegum ytri aðstæðum. En það vekur samt upp spurningar um samræmi við stefnu ríkisstjórnarinnar í öðrum málum. Hvernig er hægt að verja það að ríkisstjórnin, undir forystu Viðreisnar í atvinnuvega- og fjármálaráðuneytum, sé að kalla eftir stuðningi við iðnað og orkunýtingu á sama tíma og hún er að leggja fram frumvarp um verulega hækkun veiðigjalda, frumvarp sem mun veikja rekstrargrundvöll sjávarútvegsins og grafa undan atvinnulífi og byggð um land allt? Ef rök ráðherra fyrir stuðningi við iðnað eru þau að ytri aðstæður, eins og hækkandi orkuverð, kalli á aðlögun stjórnvalda þá hlýtur sama röksemd að gilda í sjávarútvegi þar sem aðstæður eru ekkert aðrar. Þvert á móti hefur sú grein þurft að bregðast við sveiflum á mörkuðum, launahækkunum og hækkandi hrávöruverði. (Forseti hringir.) Og síðast í gær lýsti forsætisráðherra því yfir að líklega þyrftu stórnotendur raforku að borga jöfnunargjald þannig að það á að leggja skatta á allt atvinnulíf.

Ég spyr því: Er það stefna ríkisstjórnarinnar að aðeins sumir atvinnuvegir eigi skilið aðlögun og stuðning á meðan öðrum er mætt með skattahækkunum og skorti á trúverðugri stefnu?

(Forseti (ÞSv): Forseti bendir á að ræðutími í seinni umferð er ein mínúta.)