raforkukostnaður og rekstrarumhverfi fyrirtækja.
Frú forseti. Aftur þakka ég andsvarið þó að þar hafi gætt töluverðrar mistúlkunar á orðum mínum. Ég sagði alls ekki að þetta væri farið að grafa undan samkeppnishæfni íslensks atvinnulífs heldur nákvæmlega að við þyrftum að vera á vaktinni og tíndi til ýmsa þætti sem sýna að svo er ekki, m.a. það að raforkuverð er þrátt fyrir hækkun lægra hér en þekkist víðast annars staðar. En ég er þakklát fyrir tækifærið til að koma upp og minna þó á eitt, sem er auðvitað stóra breytan í þessu, og það er að þessi ríkisstjórn, þvert á það sem þjóðin hefur reynt í tíð fyrri ríkisstjórnar, er komin vel á veg með að tryggja að hér verði meiri orkuframleiðsla til að vega upp á móti og það er sennilega sterkasta vopnið í þessari baráttu.
Þegar hv. þingmaður leggur síðan lykkju á leið sína til þess að fara að ræða hér leiðréttingu á veiðigjöldum í samhengi við þetta þá finnst mér það býsna langt seilst. Það er ítrekað búið að leggja fram gögn sem sýna að þetta á ekki að hafa neikvæð áhrif á samkeppnishæfni sjávarútvegsins vegna þess að (Forseti hringir.) um er að ræða leiðréttingu á auðlindagjaldi sem greitt er og þeir sem þekkja hugtakið auðlindagjald úr hagfræðinni átta sig á því að (Forseti hringir.) það vegur ekki að samkeppnishæfni fyrirtækja. (Forseti hringir.) Það tryggir réttlátan hlut þjóðarinnar sem m.a. verður nýttur í innviðauppbyggingu úti á landi.
(Forseti (ÞSv): Ræðutíminn er ein mínúta í síðari umferð óundirbúinna fyrirspurna.)