156. löggjafarþing — 66. fundur,  20. júní 2025.

afstaða Viðreisnar og aðgerðir í heilbrigðismálum.

[10:38]
Horfa

Sigurður Ingi Jóhannsson (F):

Virðulegur forseti. Ég beini orðum mínum til hæstv. utanríkisráðherra sem pólitísks leiðtoga Viðreisnar og ríkisstjórnarinnar. Það hefur vakið athygli mína og margra annarra að ríkisstjórnarflokkarnir, og þ.m.t. Viðreisn, hafa skipt talsvert um skoðun í einstökum málum, nefnum Íslandsbanka, ÍL-sjóðsmálið, gjaldtöku í samgöngum, þ.m.t. kílómetragjald og notkunargjöld í jarðgöngum, sem þessir flokkar töluðu gjarnan gegn á síðasta ári, á síðasta kjörtímabili, en hafa snúið við blaðinu og batnandi fólki er best að lifa. Viðreisn barðist líka heilmikið fyrir geðheilbrigðismálum og að það væri tryggt að hér væri blandað kerfi í heilbrigðismálum. Þess vegna hefur það vakið athygli okkar að upp á síðkastið hefur núverandi heilbrigðisráðherra verið að vinda aðeins ofan af slíku. Minnumst hér endómetríósu sem átti að loka en vegna þrýstings, m.a. frá okkur í Framsókn og hagaðilum, þá skipti heilbrigðisráðherra um skoðun. Það má nefna Janus sem er úrræði fyrir viðkvæmasta geðheilbrigðishópinn, sem Viðreisn hefur sannarlega barist fyrir, sem er búið að loka og tugir skjólstæðinga þeirra eru enn án nokkurs úrræðis. Þetta gerist á vakt Viðreisnar.

En steininn tók nú eiginlega úr í þarsíðustu viku þegar við vorum að fjalla um breytingar á sjúkratryggingum. Þegar breytingartillaga sem hv. þm. Ingibjörg Isaksen flutti og var studd af minni hlutanum, sem snerist um nákvæmlega sama mál og hæstv. utanríkisráðherra hefur flutt áður í þinginu, ekki einu sinni heldur fimm sinnum. Af öllum þingmönnum Viðreisnar þá greiddu fleiri atkvæði gegn því ákvæði að það væri mögulegt að tryggja fólki sambærilega þjónustu á Íslandi svo að það þyrfti ekki að fara erlendis. Ég spyr: Hvernig er hægt að vera á móti eigin máli? Hvaða hagsmunir (Forseti hringir.) eru eiginlega mikilvægari en skynsamleg nýting fjármuna ríkisins og hagsmunir sjúklinga?