156. löggjafarþing — 66. fundur,  20. júní 2025.

afstaða Viðreisnar og aðgerðir í heilbrigðismálum.

[10:41]
Horfa

utanríkisráðherra (Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir) (V):

Virðulegur forseti. Stefna Viðreisnar í þessum málum er ekki breytt en það er líka alveg rétt að við erum búin að vera tæpa sex mánuði í ríkisstjórn og við þurfum að greina þetta og það er eiginlega merkilegt hvað var lítið um greiningar sem lágu fyrir. Það er sama hvaða ráðuneyti við komum í, hvort sem það er heilbrigðisráðuneyti eða dómsmálaráðuneyti eða hvað það er, það vantar grunngögn í stórum málum þar sem ég hélt að síðasta ríkisstjórn hefði verið með augun á boltanum. Síðasta ríkisstjórn hafði sjö ár til að koma þessu í gegn en gat það ekki. Það er alveg ljóst að stefna Viðreisnar er ekki breytt og við erum enn að skoða þessi mál af því að það sem skiptir öllu máli, óháð því hver rekur þjónustuna, er aðgangur einstaklinga, fólks og fjölskyldna í landinu að heilbrigðisþjónustu, að það sé jafnræði og það sé greiður aðgangur. Það er það sem við ætlum að tryggja og við ætlum okkur ekki að hvika frá því. Við erum að skoða þetta. Heilbrigðisráðherra er með þetta í athugun, hvað þetta nákvæmlega þýðir en það er langt því frá að verið sé að hvika frá einni eða neinni stefnu. Við erum að gera þetta skynsamlega og því miður voru ekkert mikil gögn sem lágu fyrir þegar þessi ríkisstjórn tók til starfa. En við erum að taka til hendinni í þessu og gera betur.