156. löggjafarþing — 66. fundur,  20. júní 2025.

afstaða Viðreisnar og aðgerðir í heilbrigðismálum.

[10:43]
Horfa

utanríkisráðherra (Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir) (V):

Virðulegi forseti. Ég veit ekki hvort þetta er bíræfni eða ósvífni af hálfu formanns Framsóknarflokksins sem var í sjö ár í ríkisstjórn sem felldi einmitt þessar tillögur á síðasta ári. Ég hélt eftir á — ókei, það vantaði þá gögn. Það er verið að skoða þetta. Það voru tíu liðskiptaaðgerðir sem fóru til útlanda. Það er verið að reyna að vinna að þessu, að geta gert þetta allt saman hér heima. Það er líka verið að greina efnaskipti, offituaðgerðir og fleira til að hægt sé að gera þetta heima. En bíræfnin er ótrúleg. Hér var samþykkt dellufrumvarp gegn neytendum á síðasta kjörtímabili, undir lok kjörtímabils. Engin gögn lögð fram, handarbakavinna. Á ég að tala um ÍL-málið? Ekki klárað. Þessi ríkisstjórn er búin að klára það. Eigum við að tala um Íslandsbanka? Síðasta ríkisstjórn með allt niður um sig þar. Þessi ríkisstjórn er búin að klára það og ekki á sex mánuðum. Við munum klára þetta með sóma þannig að það verði fókus á þjónustuna við einstaklingana sem þurfa á henni að halda og það verður ekki aðalatriðið hver veitir þjónustuna heldur að tryggja þjónustuna og hagkvæmni í ríkisrekstri líka.

Og vel að merkja: Við ætlum að skila hallalausum fjárlögum eigi síðar en 2027. Það er eitthvað allt annað en síðasta ríkisstjórn gerði.