fjárframlög til vegagerðar.
Frú forseti. Mig langar að beina fyrirspurn til hæstv. innviðaráðherra, ég ætla að byrja á vegamálum. Nú liggja fyrir áform um að bæta við 3 milljörðum til ja, ég ætla að leyfa mér að kalla það neyðarframkvæmda í þessum mjög svo seint fram komna fjárauka sem nú liggur fyrir óafgreiddur enn. Er þetta ekki óttalegt klúður, hæstv. innviðaráðherra, hversu seint þetta er komið fram, í ljósi þess að þetta var tilkynnt með pompi og prakt af hæstv. forsætisráðherra fyrir þó nokkru síðan, áformin um 3 milljarða til að bregðast við slæmu ástandi vegakerfisins með kannski sérstaka áherslu á Vesturlandið? Erum við ekki að einhverju marki að brenna inni á tíma hvað það varðar að ná raunverulegum notum úr þessum fjárveitingum innan þessa sumars?
Sömuleiðis langar mig að spyrja hæstv. ráðherra um áform í fjármálaáætlun, sem nú liggur fyrir óafgreidd, um að það komi 7 milljarða viðbót inn á fjárveitingar til vegagerðar á næsta ári en síðan ekki söguna meir. Nú er mikið talað um að þessi gríðarlega skattahækkun sem hverfist um veiðigjöldin muni fara til innviðauppbyggingar. Í ljósi sögunnar, telur hæstv. ráðherra að heimtur um slíkt séu líklegar? Þær hafa alla vega ekki verið það á fyrri stigum.
Ég ætla að byrja á þessu tvennu. Annars vegar: Er það ekki til skaða að þessi 3 milljarða fjárveiting sé í raun enn óafgreidd, með það í huga að gagn geti orðið af þetta sumarið? Og hins vegar: Í ljósi sögunnar, hvernig metur hæstv. ráðherra áform um það að tekjur úr hækkun veiðigjalda, verði hún raunin, skili sér til vegagerðar, í því ljósi að fjármálaáætlun sem ríkisstjórnin lagði sjálf fram teiknar það bara upp til eins árs? Það hefði alveg verið í lófa lagið að teikna það upp til næstu fimm ára en það er tekin ákvörðun um að slík áform séu bara römmuð inn til eins árs.