öryggi og brunavarnir í jarðgöngum.
Virðulegi forseti. Miðað við viðbrögð hæstv. atvinnuvegaráðherra er ekki víst að hún hafi verið upplýst um þetta sem innviðaráðherra er að segja hér. En síðastliðinn sunnudag kviknaði í bifreið í Norðfjarðargöngum og göngunum var lokað um tíma á meðan viðbragðsaðilar störfuðu. Þetta er ekki fyrsta atvikið, því miður. Við höfum séð kvikna í í göngum áður, í bílum, í Hvalfjarðargöngum árið 2023 og við Vestfjarðagöng á síðasta ári. Okkar verkefni er auðvitað að tryggja öryggi fólks á ferð um landið, á vegum en ekki síður í jarðgöngum. Jarðgöng landsins eru nú 12 talsins með 25 gangamunna og alls 64 km að lengd. Umferðin hefur aukist verulega og með henni krafan um öflugt og tímanlegt viðbragð. Samkvæmt nýjustu gögnum hefur aðeins hluti þeirra slökkviliða sem bera ábyrgð á þessum göngum fengið viðeigandi búnað. Önnur, þar á meðal Fjallabyggð sem hefur undir höndum þrenn göng, eru ekki í stakk búin til að sinna vá í göngum en þessi staðreynd er staðfest í áhættumati Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar. Á síðasta ári kvað innviðaráðuneytið upp skýran úrskurð um að Vegagerðinni, sem eiganda jarðganganna, beri að greiða þann kostnað sem fellur til vegna sérstakra brunavarna í jarðgöngum. Þá lagði ráðuneytið jafnframt áherslu á að slökkvilið fái samræmdar leiðbeiningar og að samráð við hlutaðeigandi aðila verði tryggt. Enn hafa þær leiðbeiningar ekki borist og samráð hefur ekki átt sér stað þrátt fyrir ítrekanir og staðan í Fjallabyggð í dag er þannig að annar þeirra slökkvibíla sem sinntu viðbragði í göngunum er úr leik og viðbragðsgeta því skert.
Í ljósi þessa vil ég spyrja hæstv. ráðherra hvort hann hyggist grípa til einhverra aðgerða og þá hvaða aðgerða til að tryggja að slökkvilið í Fjallabyggð og önnur sambærileg slökkvilið hafi þann sértæka búnað, þjálfun og viðbragðsgetu sem nauðsynleg er til að bregðast við vá í jarðgöngum, og hvort ráðherra sé tilbúinn til (Forseti hringir.) að tryggja að þessar brunavarnir, sem krafist er einmitt með lögum og úrskurðum, verði fjármagnaðar og útfærðar strax.