öryggi og brunavarnir í jarðgöngum .
Virðulegur forseti. Varðandi öryggismál í göngum þá er það náttúrlega gríðarlega alvarlegt mál. Ég hef rætt við Vegagerðina um t.d. öryggismál í Vestfjarðagöngum vegna eldsvoða sem varð í rútu fyrir utan göngin á síðastliðnu ári og þeir eru þar að vinna að ákveðinni áætlun varðandi umferð í göngunum til að takmarka umferð langferðabíla á hverjum tíma í þeim göngum. Ég veit það að ESA, Eftirlitsstofnun Evrópusambandsins, er með mál hjá sér vegna Fáskrúðsfjarðarganga. Það er ekki forgangsmál hjá þeim en þeir hafa vakið athygli okkar á öryggismálum þar. Varðandi brunavarnir í göngunum þá er náttúrlega gríðarlega mikilvægt að slökkviliðið í landinu, og sérstaklega í á þeim stöðum þar sem göng eru, sé í stakk búið til þess að grípa til viðeigandi ráðstafana, kvikni í bifreiðum — við skulum vona að það gerist ekki. En ég mun ræða og hef rætt þetta við Vegagerðina. Varðandi samræmdar aðgerðir og leiðbeiningar þá vonast ég til þess að Vegagerðin sé að vinna í því og muni ýta á eftir því að það verði til framtíðar samræmdar leiðbeiningar. Hins vegar varðandi fjármögnun á tækjum og tólum til brunavarna þá þyrfti að skoða það sérstaklega hvað þetta varðar.