öryggi og brunavarnir í jarðgöngum .
Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir hans svar hér. Ég tek undir mikilvægi þess að það komi einmitt samræmdar leiðbeiningar og að samráð sé haft við slökkvilið og hagsmunaaðila í tengslum við það hvernig skuli bregðast við. Varðandi fjármunina er það alveg skýrt, og kom fram, eins og ég sagði áðan, í úrskurði innviðaráðuneytisins, að Vegagerðin ber ábyrgð á þessu. Ég vann mikið að þessu máli á síðasta ári, átti gott samtal við þáverandi innviðaráðherra, forstjóra Vegagerðarinnar og líka slökkviliðið í Fjallabyggð. Það er mikil þörf á auknum fjármunum til þess einmitt að tryggja þennan búnað sem er ekki til staðar í dag, til að geta brugðist við komi upp vá í jarðgöngum á Íslandi.
Enn og aftur spyr ég hæstv. ráðherra: Hyggst hann beita sér fyrir því að slökkviliðið í Fjallabyggð, og önnur sambærileg slökkvilið í sömu stöðu, fái fjármuni til þess að tryggja að þessi búnaður sé til staðar svo að við getum einmitt tryggt viðbragð í jarðgöngum á Íslandi?