156. löggjafarþing — 66. fundur,  20. júní 2025.

öryggi og brunavarnir í jarðgöngum.

[10:56]
Horfa

innviðaráðherra (Eyjólfur Ármannsson) (Flf):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir seinni fyrirspurnina. Ég mun svo sannarlega beita mér fyrir því að tryggja búnað til slökkviliða í landinu svo þau geti brugðist við eldsvoðum í jarðgöngum og ég tel það gríðarlega mikilvægt að þau séu í stakk búin til að geta brugðist við með réttum hætti og þá í ljósi samræmdra leiðbeininga frá Vegagerðinni og líka að það yrðu æfingar hvað þetta varðar í göngum landsins. Það er alveg hárrétt sem kemur fram hjá hv. þingmanni að umferð á vegum landsins hefur aukist alveg gríðarlega mikið. Ef ég man tölurnar rétt er um 80% aukning á vegum landsins og þungaflutningar hafa líka aukist og þetta er mál sem við þurfum að taka til gagngerrar endurskoðunar í ljósi þeirra atvika sem hafa átt sér stað í Vestfjarðagöngum í fyrra og svo núna í Norðfjarðargöngum. Þetta ætti að vera okkur ákveðinn fyrirboði um að það gætu orðið enn þá hættulegri slys í framtíðinni. Varðandi þetta einstaka atvik í Norðfjarðargöngum þá tel ég að þetta fari beint til rannsóknarnefndar samgönguslysa sem (Forseti hringir.) mun rannsaka atvikið og koma þá með frekari leiðbeiningar hvað það varðar sem við munum svo sannarlega taka alvarlega. En ég þakka hv. þingmanni fyrir þessa fínu fyrirspurn.