156. löggjafarþing — 66. fundur,  20. júní 2025.

gögn og greiningar vegna frumvarps um veiðigjald.

[10:58]
Horfa

Jón Gunnarsson (S):

Virðulegur forseti. Mig langar, með leyfi forseta, að vitna í ræðu sem flutt var fyrir nokkrum árum af Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur, hæstv. utanríkisráðherra og formanni Viðreisnar, þar sem hún segir m.a.:

„[…] menn ætla að fara í að ógna ekki bara byggðum landsins með þessari gríðarlegu skattlagningu, heldur líka ýmsum þjónustufyrirtækjum, rannsóknarfyrirtækjum, nýsköpunarfyrirtækjum, sem eru vítt og breitt um landið, en ekki síst á suðvesturhorninu. Þetta eru markvissar rannsóknir sem hafa átt sér stað.“ — Og þar vitnar hún í sambærilegar rannsóknir og hagsmunaaðilar hafa látið framkvæma í dag á áhrifum þeirrar auknu skattlagningar í veiðigjöldum sem ríkisstjórnin hefur hugmyndir um að leggja á.

Ég ætla að fá að halda áfram, með leyfi forseta, þar sem formaður Viðreisnar segir:

„Samt er það þannig og ég hef bent á það margítrekað ásamt fleiri sjálfstæðismönnum, og ég greini það líka í máli framsóknarmanna, að það hefði verið hægt að ná samkomulagi um hóflegt veiðigjald. Það er ekki hóflegt sem við erum að ræða hér í dag, gjald sem ógnar lífsviðurværi fólks víða um land. Það er sorglegt að upplifa þetta aftur og aftur hjá þessari ríkisstjórn að ekki er hægt að reyna að greina aðalatriðin frá aukaatriðum og ná samkomulagi um stóru myndina.“

Þá var nú verið, virðulegur forseti, að ræða hófsamari hækkanir á veiðigjöldum en hugmyndir eru uppi um í dag undir forystu Viðreisnar, sama formanns. Hún vitnaði í það áðan að það hefði vantað gögn hjá síðustu ríkisstjórn í ýmsum málum. Það er það sem er kallað eftir hér í þessu máli.

Ég ætla að spyrja hæstv. ráðherra hvort það gæti ekki verið skynsamlegt, eins og hún lagði sjálf til á sínum tíma, að staldra við og vanda vinnubrögð, hlusta á sveitarfélögin, á nýsköpunarfyrirtækin, á Samtök iðnaðarins, sem þegar eru farin að sjá fram á mikinn samdrátt vegna pantana sem hafa verið settar á bið, og miklu fleiri.