156. löggjafarþing — 66. fundur,  20. júní 2025.

gögn og greiningar vegna frumvarps um veiðigjald.

[11:04]
Horfa

utanríkisráðherra (Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir) (V):

Virðulegi forseti. Hér er mikið galdrafár af hálfu stjórnarandstöðunnar. Það er náttúrlega verið að lýsa yfir vantrausti á gögnunum frá Skattinum. Það er verið að lýsa yfir vantrausti á gögnum frá Fiskistofu. Það er það sem hv. þingmaður er að segja. Þessi gögn eru á kristaltæru. Farið nú að vinna með þessi gögn en ekki vera að búa til einhverjar falsfréttir sem eiga enga stoð í raunveruleikanum.

Talandi um Evrópusambandið. Það vill svo til að það eru íslensk fyrirtæki, sjávarútvegsfyrirtæki, sem eru stærstu fjárfestingaraðilar í evrópskum sjávarútvegi. Stærstu aðilar í fjárfestingum í evrópskum sjávarútvegi eru íslensk útgerðarfyrirtæki. Er hagnaðurinn heima í þorpunum, eins og auglýsingar SFS segja? Nei, hann er úti í Evrópusambandinu. Alla vega meta íslensk útgerðarfyrirtæki Evrópusambandið sem ekki svo slæmt að þau eru til í að fjárfesta í sjávarútvegi þar. Ég ætti eiginlega skilja hér eftir einhvern vasaklút fyrir þennan grátkór sem stjórnarandstaðan er fyrir hönd sjávarútvegsins. (Gripið fram í: Takk.) Þannig að við tökum þessa umræðu áfram, ræðum áfram veiðigjöldin. En auðvitað verð ég að segja, virðulegur forseti, sem utanríkisráðherra, (Forseti hringir.) af því að það er einn úr utanríkismálanefnd búinn að spyrja mig hér áður, að það er ekki spurt um utanríkismálin. Það er leiðtogafundur í Haag í næstu viku, það loga eldar í Miðausturlöndum, það er ýmislegt að gerast í heiminum og ég hefði haldið að stjórnarandstaðan myndi sjá sóma sinn í því að spyrja um þau mál líka. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)