156. löggjafarþing — 66. fundur,  20. júní 2025.

staða samningaviðræðna um þinglok.

[11:06]
Horfa

Sigríður Á. Andersen (M):

Virðulegur forseti. Forseti lét þau ummæli falla fyrir stuttu að það væri hennar mat að þingstörfum gæti lokið í næstu viku og ég fagna þeim ummælum og því mati. En ég hlýt hins vegar að vekja athygli á því að í nefndum þingsins eru enn þá mjög stór mál sem langflest bíða 2. umræðu og mörg hver, a.m.k. ef ég tala út frá minni nefnd, eins og var rakið hér í óundirbúnum fyrirspurnum, hv. velferðarnefnd, mál sem maður sér ekki fyrir endann á að verði leyst. Mig langar að spyrja virðulegan forseta og biðja hann um að sýna þinginu þann sóma að veita nánari upplýsingar um hver staða samningaviðræðna þingflokksformanna við forseta er og leggja mat á það núna hvort þetta mat sé enn þá raunhæft. Ég hvet forseta til góðra verka í þessum efnum vegna þess að mér þykir algerlega óásættanlegt hvernig þingstörfum er komið núna á þessum tímapunkti, að nálgast júlí.