staða samningaviðræðna um þinglok.
Virðulegi forseti. Ég vil nú nota tækifærið og taka undir með hv. þm. Sigríði Andersen. Ég verð að segja að mér fannst þessi svör virðulegs forseta vera nokkuð rýr. Staðan er sú að það hefur enginn áttað sig á því, ég þekki engan, hvorki innan þings sem utan, sem áttar sig á því á hvaða vegferð þessi ríkisstjórn er. Þegar virðulegur forseti kemur hér og segir: Við ætlum að klára í næstu viku, þá eru það auðvitað stórar fréttir og sérstaklega í ljósi stöðu mála í þinginu. Við þekkjum það að það eru stór mál sem þurfa mikla umræðu vegna þess að þau voru illa undirbúin, vegna þess að ríkisstjórnin er á einhverri sérkennilegri vegferð að meta árangur sinn út frá fjölda mála sem fer í gegnum þingið. Þessi vinnubrögð eru í besta falli kaoskennd. (Forseti hringir.) Ég held að það sé öllum til sóma og ég beini því vinsamlegast til virðulegs forseta að forseti útskýri aðeins fyrir okkur hvar við stöndum og hvert á að fara. Það er fullkomlega útilokað að vinna út frá því sem við héldum að væri áætlun ríkisstjórnarinnar en verður kaoskenndari með hverjum deginum sem líður.