staða samningaviðræðna um þinglok.
Virðulegur forseti. Ég ætlaði aðeins að koma hérna inn, ég var að hlusta og horfa á umræðurnar í gærkvöldi sem voru hér í þingsalnum. Það var margt mjög gott í þeirri umræðu. Menn voru efnislega að fara yfir mál og ég var reyndar ósammála viðkomandi ræðumönnum en það er bara eins og lífið er. En það sem menn eru farnir að segja hérna — ég ætla bara að vekja athygli á því hvert inntakið í því er. Menn eru farnir að koma upp í ræðustólinn og segja, og verið þannig í fjölmiðlum líka, að það sé ætlun ríkisstjórnarinnar, að ríkisstjórnin vilji og það sé markmið hennar, að setja fyrirtæki á hausinn, svipta fólk atvinnu. Það sé markmið ríkisstjórnarinnar, það sé ætlun hennar, hún vilji gera það vegna þess að það eigi að búa til eitthvert betra veður gagnvart Evrópusambandinu. Þetta sama fólk er síðan að tala um það að í atvinnuvegaráðuneytinu sé starfsfólk sem blekki þingið. Við getum verið ósammála um efnisatriði (Forseti hringir.) en sumt held ég að menn ættu að hugsa betur áður en þeir láta það út úr sér. Við erum ósammála um veiðigjöldin en það (Forseti hringir.) ætlar sér enginn neitt illt, hvorki stjórnarandstaðan né stjórn. Við skulum ekki gera hvert öðru það upp.