156. löggjafarþing — 66. fundur,  20. júní 2025.

staða samningaviðræðna um þinglok.

[11:11]
Horfa

Jón Gunnarsson (S):

Virðulegur forseti. Hæstv. utanríkisráðherra og formaður Viðreisnar hvatti okkur í atvinnuveganefnd til að fara að vinna með gögnin sem fyrir liggja um frumvarp um veiðigjald, gögn frá Skattinum og vitnaði í fleiri. Skatturinn er reyndar nýkominn með sín gögn að beiðni minni hlutans. Skatturinn lagði fram útreikninga sem gjörbreyttu frumvarpi ráðherrans, gjörbreyttu því. En vandamál okkar, virðulegi forseti, og ég ætla að leita ásjár forseta með það, að auðvitað ætti hæstv. utanríkisráðherra að vera betur upplýst því við höfum verið að kalla eftir því að fá þessar greiningar Skattsins. Við höfum kallað eftir því að fá upp á borðið öll samskipti atvinnuvegaráðuneytisins, fjármálaráðuneytisins og Skattsins vegna þessara útreikninga vegna þess að við getum ekki glöggvað okkur á þessum upplýsingum, því miður, virðulegur forseti. Við getum ekki glöggvað okkur á þessum upplýsingum og þar með getum við ekki unnið með þær eins og best væri til þess að ljúka þessu máli. Ég leita til virðulegs forseta með að aðstoða okkur við að ná þessum gögnum frá ráðuneytunum.