156. löggjafarþing — 66. fundur,  20. júní 2025.

staða samningaviðræðna um þinglok.

[11:12]
Horfa

Bergþór Ólason (M):

Frú forseti. Fyrst vegna orða hv. þingflokksformanns Viðreisnar, Sigmars Guðmundssonar, varðandi skammir í garð starfsmanna atvinnuvegaráðuneytisins og eftir atvikum fleiri opinberra stofnanna. Það er held ég óhætt að segja að meining og gagnrýni beinist auðvitað alltaf gagnvart þeim ráðherra sem á málinu heldur því að ráðuneytið er auðvitað ekki annað en skrifstofa ráðherra hverju sinni. Allt sem kemur frá ráðuneyti er í nafni ráðherrans þannig að ég held að það sé nú svona meginlínan sem megi lesa út úr þessu holt og bolt. Síðan verður að nefna það hér að síðasta innkoma hæstv. utanríkisráðherra, formanns Viðreisnar, í fyrirspurnatíma hér áðan varðandi það hversu vel grundað málið er að mati hæstv. ráðherra, vekur kannski ákveðnar áhyggjur ein og sér, telji hæstv. ráðherra það raunverulega vera stöðuna að talnalegur grundvöllur málsins sé jafn sterkur og vel ígrundaður og ráðherrann hélt hér fram áðan. Það setur okkur dálítið á annan stað í ljósi þess að í þrígang hefur þurft að endurstilla miðið hvað talnalegar forsendur málsins varðar.