staða samningaviðræðna um þinglok.
Frú forseti. Ég vil koma hingað aðeins inn og byrja á því að segja að ég fagna því að verið sé að draga í land með árásir á starfsfólk ráðuneytisins og menn sameinist um að beina þeim að þeirri sem hér stendur. Hins vegar er það rangt að það sé einhver sérstakur misskilningur. Það er mjög erfitt, alla vega að mínu viti, að misskilja orðin starfsfólk ráðuneytis. Þannig voru árásirnar fyrst orðaðar. En gott og vel, tökum það gilt og svo eiga menn við sjálfa sig hvort afsökunarbeiðni til handa starfsfólki ráðuneytisins sé við hæfi eða ekki.
Varðandi upplýsingabeiðni um tímalínu þá barst hún ráðuneytinu síðastliðinn laugardag. Hún er í vinnslu og hún mun verða gefin út innan tilskilins frests, vonandi þrátt fyrir frídaga þarna inni, og hún er bara sú sem farið hefur verið margsinnis yfir. Varðandi gögnin hins vegar þá liggja þau fyrir. Það er búið að útskýra, m.a. á fundum atvinnuveganefndar, í hverju misskilningurinn lá. Það er búið að gefa út yfirlýsingu sem undirrituð er af tilheyrandi stofnunum og tveimur ráðuneytum. Þetta liggur skýrt fyrir.
Það sem er hins vegar að rugla umræðuna er að hér í umræðu minni hlutans í andstöðunni (Forseti hringir.) við þessa leiðréttingu hefur sífellt verið haldið á lofti þeim gögnum sem Skatturinn hefur leiðrétt og auðvitað veldur það ákveðinni upplýsingaóreiðu. (Forseti hringir.) En þetta liggur allt fyrir. Tímalínan mun birtast atvinnuveganefnd eins og beðið var um innan (Forseti hringir.) tilskilins frests og síðan halda bara umræðurnar hér áfram eins lengi og mönnum þykir þörf á.
(Forseti (ÞSv): Forseti minnir aftur á að tíminn er ein mínúta þegar rædd er fundarstjórn forseta.)