staða samningaviðræðna um þinglok.
Virðulegi forseti. Ég vil byrja á að taka undir með þeim hv. þingmönnum sem hér hafa komið og lýst áhyggjum af því hvernig verður að ljúka hér þingstörfum bara vegna undirbúnings málanna, ekki vegna efnislegs innihalds þeirra heldur hvernig hefur gengið að undirbúa þau. Það er enn verið að afgreiða stór mál út úr nefndunum, þau eru enn þá til umræðu í nefndunum og mörg stór mál sem bíða hér 2. umræðu sem þurfa að fá sína umfjöllun sökum stærðar þeirra.
Mig langar líka að beina þeirri spurningu til virðulegs forseta: Hvað líður beiðni þingflokksformanns Sjálfstæðisflokksins, hv. þm. Hildar Sverrisdóttur, um að hæstv. utanríkisráðherra eigi hér samtal við þingið sérstaklega um stöðuna á milli Ísraels á Íran? Hv. þingflokksformaður óskað eftir þessari umræðu og ég gat ekki betur skilið en að hæstv. utanríkisráðherra kallaði eftir því að fá að ræða þetta í þingsal þannig að ég óska eftir að fá upplýsingar um það hvenær við fáum það á dagskrá.