156. löggjafarþing — 66. fundur,  20. júní 2025.

staða samningaviðræðna um þinglok.

[11:41]
Horfa

Jón Gnarr (V):

Frú forseti. Ég verð nú að hefja mál mitt á því að þakka fundarstjóra, forseta, fyrir óaðfinnanlega fundarstjórn. Þessi umræða finnst mér farin að minna um margt á svona fullukallaraus: Hérna, hlustaðu á mig, hlustaðu á mig, ég ætla að segja — hlustaðu á mig. — Þessi gaur hérna. Í alvöru talað, í alvöru talað, sko, ég ætla að segja þér eitt, ég ætla að segja þér eitt. Já, ókei, hvað ætlarðu að segja mér? Sko, hlustaðu á mig, [Hlátur í þingsal.] hlustaðu á mig, sko hérna, 27 milljarðar — 27 milljarðar. Hvað segirðu, hvað ertu að tala um? Nei, ég meina hérna, þú veist, hlustaðu hérna, pældu í þessu. Já, já, ókei, eða þú veist.

Þingmenn stjórnarandstöðunnar eru farnir að minna mig á hermenn á vígstöðvum sem eru komnir í skotgrafir og átta sig á því að það er allt horfið, allt liðið sem var á bak við er horfið. Stríðið er löngu tapað, þau eiga bara eftir að átta sig á því. — Takk fyrir. [Hlátur í þingsal.]