Varamenn taka þingsæti.
Borist hefur bréf frá formanni þingflokks Flokks fólksins um að Sigurður Helgi Pálmason verði fjarverandi á næstunni. Einnig hefur borist bréf frá formanni þingflokks Framsóknarflokksins um að Halla Hrund Logadóttir muni ekki geta sinnt þingstörfum á næstunni. Að lokum hefur borist bréf frá formanni þingflokks Miðflokksins um að Sigríður Á. Andersen verði fjarverandi næstu daga. Í dag tekur því sæti á Alþingi 2. varamaður á lista Flokks fólksins í Suðurkjördæmi, Jónas Yngvi Ásgrímsson, en 1. varamaður hefur boðað forföll, 1. varamaður á lista Framsóknarflokksins í Suðurkjördæmi, Jóhann Friðrik Friðriksson, og 3. varamaður á lista Miðflokksins í Reykjavíkurkjördæmi norður, Einar Jóhannes Guðnason, en varamenn ofar á lista hafa boðað forföll.