skattahækkanir ríkisstjórnarinnar.
Frú forseti. 16 ár eru liðin frá því að vinstri stjórn Jóhönnu Sigurðardóttur og Steingríms J. Sigfússonar svaraði efnahagserfiðleikum hér á landi með skattahækkunum á alla hugsanlega tekjustofna. Nú virðist sagan ætla að endurtaka sig með ríkisstjórn sem ítrekar að hún sé verkstjórn með plan en hefur hingað til sýnt fátt annað en ósamræmi, útúrsnúninga og sífellt nýjar álögur. Síðustu sex mánuði hefur ríkisstjórnin boðað að afnema samsköttun hjóna og sambýlisfólks, breyting sem bitnar sérstaklega á fjölskyldum með ójafnar tekjur. Þá hefur hún kynnt kílómetragjald á bílaeigendur, skattlagningu á einyrkja og verktaka og þrýst sveitarfélögum til að hámarka útsvar sem hækkar skatta á yfir 90.000 einstaklinga. Á sama tíma er gert ráð fyrir skerðingum á ellilífeyri vegna nýs örorkukerfis. En ætlar ríkisstjórnin að lækka sín eigin kjör? Nei, auðvitað ekki. Fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar felur í sér tvöföldun veiðigjalda og engin greinargerð fylgir um áhrifin á atvinnulífið eða byggðir landsins. Nýlega lagði forsætisráðherra sjálf fram hugmyndir um jöfnunargjald á stórnotendur raforku og auðlindagjald á hitaveitu og boðaði sérstaka skattlagningu á ferðaþjónustuna, næststærstu atvinnugrein þjóðarinnar. Það er því eðlilegt að spurt sé: Hefur þessi ríkisstjórn eitthvað annað svar við áskorun samfélagsins en að hækka skatta?
Ég spyr því hæstv. forsætisráðherra: Hvar er heildarsýnin? Hvernig á að skapa störf og verðmæti þegar allar hugmyndir ríkisstjórnarinnar gera framtaki fólks og fyrirtækja erfiðara fyrir?