skattahækkanir ríkisstjórnarinnar.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir fyrirspurnina. Þessi ríkisstjórn hóf fyrsta vinnudag ársins á að tilkynna hér hagsýni í ríkisrekstri. Þetta er verkefni sem við höfum unnið ötullega að, m.a. með því að grafa okkur í gegnum alls konar nefndir og stýrihópa og vinnuhópa sem greitt var fyrir af fyrrverandi ríkisstjórn. Við erum að reyna að ráðast í ákveðnar hagræðingar, í sumum tilvikum sameiningar sem hafa þótt erfiðar og sem kannski hefur ekki verið pólitískur vilji til að klára. Þetta erum við að reyna að leggja m.a. fyrir þingið. Við höfum skilað okkar fjármálaáætlun sem sýnir að við ætlum að skila 0% halla árið 2027, ári fyrr en var í fyrri fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar sem áður sat og hv. þingmaður sat í og ætlaði sér að gera, áætlun sem varð reyndar nokkrum mánuðum síðar úrelt. Við erum búin að ákveða að setja á fót innviðafélag. Það er búið að taka ákvörðun um það í ráðherranefnd um ríkisfjármál til að koma í veg fyrir að pólitísk dogma, vil ég leyfa mér að segja, milli kjörtímabila komi í veg fyrir að stórframkvæmdum verði hrint úr vör. Við erum núna með í vinnslu, m.a. inni í forsætisráðuneytinu, í gegnum önnur ráðuneyti, atvinnustefnu einmitt til þess að nýta þá auknu orku sem við ætlum að hleypa af stað í landinu með einföldunarfrumvarpi, m.a. með því að leyfa stórum framkvæmdum eins og Hvammsvirkjun loksins að komast af stað til að efla græna iðngarða, græna orkustarfsemi, nýsköpun í landinu. Allt þetta er ríkisstjórnin með á sínu borði. Stjórnarandstaðan aftur á móti hefur bara áhuga á að standa varðstöðu um örfá fyrirtæki og örfáar fjölskyldur í landinu í formi hækkunar auðlindagjalda sem er ekki skattur, enda væri eitthvað athugavert við skatt sem væri frádráttarbær frá sjálfum skattstofni þessara fyrirtækja. Þannig að það er af nægu að taka.