156. löggjafarþing — 68. fundur,  23. júní 2025.

skattahækkanir ríkisstjórnarinnar.

[15:47]
Horfa

Guðrún Hafsteinsdóttir (S):

Frú forseti. Það er orðið fremur regla en undantekning að hæstv. forsætisráðherra víki sér undan að svara einföldum og málefnalegum spurningum. Hér kemur löng ræða um hagræðingu þar sem á sama tíma er gerður starfslokasamningur við vararíkissaksóknara á yfir 300 milljónir. Er þetta nú trúverðugur málflutningur? Ég bara spyr. En skattstefna ríkisstjórnarinnar er ekki bara vangavelta því hún er raunveruleg. Á sex mánuðum hefur ríkisstjórnin nefnilega ekkert lagt fram til að styðja við verðmætasköpun heldur eingöngu lagt eitthvað fram sem hefur verið aukið álögur á heimilin, einstaklinga og fyrirtæki í landinu. Og nýyrðasmíði ríkisstjórnarinnar breytir því ekki að álögur eru auknar, byrðar eru lagðar á fleiri og róðurinn verði þyngri fyrir fjölskyldur og fyrirtæki. Skattar eru skattar, sama hvaða nafn ríkisstjórnin notar yfir það. Þessi ríkisstjórn er komin í sömu vegferð og ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur og við munum öll hvernig það endaði þannig að sagan hefur ekki kennt hér neitt. (Forseti hringir.)

Ég spyr því aftur: Er það virkilega markmið ríkisstjórnar sem kennir sig við jöfnuð og almannahagsmuni að skattleggja landsbyggðina út af kortinu og leggja þyngstu byrðarnar á þá sem búa lengst frá höfuðborginni?