skattahækkanir ríkisstjórnarinnar.
Herra forseti. Ég veit ekki betur en ég hafi farið fremur ítarlega yfir raunveruleg verkefni sem eru á borði ríkisstjórnarinnar, þar með talið innviðafélag sem á að hrinda af stað fyrstu göngum sem hafa farið hér í framkvæmd í að verða næstum því áratug, þannig að það stendur ekki á okkur. Ég hlakka til að fá þingmál um þetta hér inn í haust og ég vonast til að við fáum almennan stuðning við það. Hér höfum við séð vexti lækka um 1,75% frá áramótum. Um þetta munar raunverulega hjá heimilunum í landinu. Ég hvet hv. þingmann til að stíga aðeins út úr þessum sal, úr því málþófi sem hér hefur verið síðustu daga, og ræða við fólkið í landinu um hvernig því finnst raunverulega ganga hér í landi, um hvað fólki finnst raunverulega um þann málflutning sem heyrist hér inni um að þetta séu eintómir skattar sem hér sé verið að ræða. Það átta sig allir á hvað er í gangi inni í þessum sal. Það gera sér allir grein fyrir því að veiðigjöld eru ekki hefðbundin skattlagning. Það skiptir ekki máli hversu oft það er sagt hér inni. Því verður ekki breytt.