framlög Íslands til varnarmála.
Frú forseti. Já, ég hef gaman af því hvað þetta hefur vakið mikla athygli. Þetta er auðvitað eitthvað sem við höfum haldið mikið á lofti í Samfylkingunni og ríkisstjórnin öll líka núna, reynt að halda svona samtölum opnum þrátt fyrir að vera komin í þessi embætti. Þetta var gífurlega góður fundur á Ísafirði. Að sama skapi var góður fundur á Tálknafirði. Ég var nýlega með opinn fund á flugvellinum á Akureyri, Vopnafirði, við vorum líka í Neskaupstað. Við erum búin að vera víða þannig að við höfum sannarlega verið í Norðvesturkjördæmi. Það er bara mjög gaman að fá þau sjónarmið fram sem gjarnan koma á þessum fundum. En það sem er kannski líka áhugaverðast er að víða koma upp að manni einstaklingar, jafnvel kjósendur minnihlutaflokkanna, og segja við mann: Þið standið ykkur vel, haldið þið áfram. Halla sér upp að manni og segja: Kristrún, þið verðið að klára þetta mál. (SDG: Hver var það?) Við erum ekki sátt við framgöngu minni hlutans í málþófi í þessu máli þrátt fyrir við höfum kosið þau til annarra verka. Mér ber skylda að koma þessum skilaboðum hingað til skila (Forseti hringir.) því að það er ástæða fyrir því að fólk er að hvísla þessu í eyru okkar þegar við löbbum út úr slíkum fundarsölum.