skilaboð Íslands á leiðtogafundi NATO og viðbrögð við tollahækkunum.
Virðulegi forseti. Flest er nú gott á Íslandi og hefur verið lengi en það er ýmislegt sem fer versnandi, það eru versnandi horfur í sjónum, m.a. ástand á þorski og gegnd makríls við landið. Í heiminum fara tollar hækkandi sem valda minni kaupmætti í öðrum löndum sem mun hafa áhrif á ferðaþjónustu og einnig getu fólks í öðrum löndum til þess að kaupa okkar dýru og góðu vöru. Það er ófriður víða um heim og vaxandi líkur á auknum átökum. Það er nú held ég ekki hægt að kenna síðustu ríkisstjórn um þetta enda er það ekki spurningin heldur: Hvernig ætlar núverandi ríkisstjórn að bregðast við þessu? Er ekki skynsamlegast að fara að öllu með gát, fara varfærnisleiðina og styrkja frekar grundvöllinn og samkeppnishæfni útflutningsgreina okkar eins og sjávarútvegs og ferðaþjónustu í stað þess að ganga fram með því offorsi sem ríkisstjórnin er að gera í dag? Það mun draga úr verðmætasköpun og getu samfélagsins til að standa undir auknum útgjöldum. Og þetta er sérstaklega áhugavert í ljósi þess að það er NATO-fundur í þessari viku og það sem er til umræðu er markmið um 5% til varnarmála og sérstakt 1,5% til til sértækra mála, svona tvínota þátta, innviða og fleira. Hæstv. forsætisráðherra hefur talað fjálglega um það erlendis að það sé líklegt að eigi að gerast.
Þess vegna vil ég spyrja hæstv. forsætisráðherra: Hver verða skilaboð Íslands á ársfundi NATO núna í vikunni, m.a. um þetta? Einnig hitt sem ég spurði um fyrst: Ætlar ríkisstjórnin ekkert að bregðast við þessu alheimsástandi sem er að verða, þessari óvissu sem mun hafa áhrif á efnahag Íslands næstu ár?