156. löggjafarþing — 68. fundur,  23. júní 2025.

skilaboð Íslands á leiðtogafundi NATO og viðbrögð við tollahækkunum.

[15:59]
Horfa

forsætisráðherra (Kristrún Frostadóttir) (Sf):

Frú forseti. Ég get tekið undir með hv. þingmanni að það eru vissulega óróatímar í alþjóðamálum og undir slíkum kringumstæðum ber okkur skylda að hafa stjórn á því sem við þó getum haft stjórn á. Okkur ber skylda til að koma á ákveðnu jafnvægi hér þegar kemur að atvinnulífinu. Okkur ber skylda til að fjárfesta í innviðum til að styrkja varnir okkar og það eru þau skilaboð sem við erum að fara út með til Haag. Mér finnst líka mjög jákvætt að geta farið með þau skilaboð til Haag að hér á þessu þingi séum við með stjórnmálaflokka sem allir sem einn styðja veru okkar í NATO, Atlantshafsbandalaginu. Mér finnst það framfaraskref að fólk þurfi ekki að hafa áhyggjur af þeim anga, að við séum að taka umræður um það hér inni hvort vera okkar í slíku varnarbandalagið sé æskileg. Ég sé ekki betur en að flestir séu sammála þessari leið sem hv. þm. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson var að spyrja um hér áðan, að við ræðum einmitt um sérstöðu Íslands í því samhengi.

Hvað ætlum við að gera? Mér finnst við hafa verið frekar skýr hvað það varðar. Við erum að styrkja innviði landsins, við erum að koma á fót innviðafélagi til þess að tryggja að hér verði góð og öflug fjárfesting á næstu árum. Við erum að leita leiða, m.a. í samvinnu við stjórnarandstöðuna með þingmannanefnd, þar sem hæstv. utanríkisráðherra hefur lagt mikla áherslu á að skilgreina hvaða þættir geta fallið undir þessi mál til þess eins að koma jafnvægi á þennan málaflokk hér á landi. Mér þykir þetta ekki tengjast með beinum hætti þeim aðgerðum sem ríkisstjórnin er að ráðast í í sjávarútvegi enda tel ég nokkuð víst, verandi ágætlega læs á ársreikninga umræddra fyrirtækja, að þetta mun ekki skapa það ójafnvægi sem hér er verið að tala um. Þetta mun auka jafnvægi hér á landi. Þetta mun gera það að verkum að fjármagn mun frekar leita inn í nauðsynlega fjárfestingu frekar en kannski einmitt allt í ákveðnar fjárfestingar í ákveðnum fyrirtækjum á höfuðborgarsvæðinu, því þessir tugir milljarða sem hafa verið að leita út úr arðgreiðslum (Forseti hringir.) hafa ekki allir skilað sér í innviðauppbyggingu fyrir utan höfuðborgarsvæðið. Það er alveg á hreinu.