156. löggjafarþing — 68. fundur,  23. júní 2025.

skilaboð Íslands á leiðtogafundi NATO og viðbrögð við tollahækkunum.

[16:01]
Horfa

Sigurður Ingi Jóhannsson (F):

Virðulegi forseti. Varðandi síðustu svör hæstv. forsætisráðherra þá hvet ég hæstv. forsætisráðherra til að hlusta betur á þær umræður sem eru í þessum þingsal og þær umsagnir sem hafa borist atvinnuveganefnd vegna þess máls því að fjárfestingar í sjávarútvegi, innan sjávarútvegsins, eru mjög, mjög miklar og miklu meiri en í flestum öðrum atvinnugreinum.

Staðan er auðvitað alvarleg í heiminum og það er þess vegna sem ég var að vara við því að menn héldu áfram eins og ekkert hefði í skorist. Þegar Bandaríkin bombuðu Íran, sem við höfum kannski ákveðinn skilning á vegna þess að þar er land sem hvorki virðir alþjóðalög né reglur samfélagsins og samninga sem við setjum, þá er það engu að síður brot á alþjóðasáttmálum og jafnvel lögbrot í þeim löndum sem það er. Við eigum allt undir að stóru löndin og öll lönd virði lög og alþjóðareglur. Það er það sem við lifum eftir. (Forseti hringir.) Þess vegna vil ég spyrja að lokum: Hver er afstaða hæstv. forsætisráðherra? Hvernig mun hæstv. forsætisráðherra tala á NATO-fundinum um þessa staðreynd, (Forseti hringir.) það sem hefur verið að gerast síðustu daga og gæti orðið til þess að hér kæmi ný olíukreppa með tilheyrandi áhrif á, já, sjávarútveginn og ferðaþjónustuna?

(Forseti (ÞSv): Forseti minnir hv. þingmenn á að í seinni umferð óundirbúinna fyrirspurna er ræðutíminn ein mínúta.)