skilaboð Íslands á leiðtogafundi NATO og viðbrögð við tollahækkunum.
Frú forseti. Staðan í heiminum er ekki góð núna. Ég held að við hljótum öll að gera okkur grein fyrir því. Þessir nýlegu atburðir milli Ísraelsmanna og Írana og núna tilkoma Bandaríkjamanna inn í þau átök, ég tala nú ekki um það stríð sem enn geisar í Úkraínu og stöðuna á Gaza sem mögulega gleymist á þessum tíma — það er erfitt að horfa upp á þetta. Við höfum haldið því á lofti og hæstv. utanríkisráðherra var mjög skýr í fjölmiðlum um það um helgina að lausn í málefnum Írans felst ekki beitingu vopna. Hún þarf að eiga sér stað eftir diplómatískum leiðum. Við höfum lýst því yfir að þessi þróun sem hefur átt sér stað undanfarna sólarhringa sé alvarleg. Það munu verða skilaboðin frá okkur. Þetta eru sömu skilaboð og eru að berast frá löndunum í kringum okkur. Það er verið að hvetja til samtals. Það er verið að reyna að hvetja átakaaðila til stillingar og það er enn þá ráðrúm til að setjast að samningaborðinu og Ísland mun hvetja til þess á næstu dögum.