upphæð auðlindarentu.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir fyrirspurnina. Kerfið eins og það er núna var hannað af síðustu ríkisstjórn. Veiðigjaldið eins og það er reiknað í dag er ekki fengið úr einhverjum dæmibókum eða stærðfræðibókum eða auðlindarentubókum eða hagfræðibókum. Þetta er mat. Þetta er mat alveg eins og það var mat og ákvörðun hjá síðustu ríkisstjórn að ákveða breytingar á frádráttarliðum, stofni veiðigjalds, og segja að vextir hjá útgerð séu ekki þessi nokkur prósent sem þeir fá á alþjóðlegum mörkuðum. Nei, það er ígildi afskriftanna þeirra, 10–15%. Þeir sem þekkja til stofns veiðigjaldsins vita að þar eru fyrst og fremst matskennd atriði, þar á meðal hvert er verðmæti aflans sem kemur upp úr sjónum að hluta til. Hér er einmitt verið að leggja skýrara, einbeittara, myndi ég segja, fókuseraðra mat á hvert undirliggjandi verðmæti er. Svo eru dregnir frá allir þeir liðir sem m.a. síðasta ríkisstjórn ákvarðaði og mætti líka að mínu mati endurskoða, enda er ekkert fast í hendi hvað það varðar.
Auðlindarentan, já, að einhverju leyti er hún huglægt mat en það þarf ekki annað en að skoða umframarðsemi í sjávarútvegi, umframarðsemi eftir að fjárfestingar hafa verið greiddar, eftir m.a. að kostnaður af þeim fjárfestingum hefur verið frádráttarbær kostnaður áður en þetta gjald er lagt fram, til að átta sig á því að það er auðlindarenta í sjávarútvegi. Þannig að mér finnst þessi spurning sérstök. Það liggur alveg fyrir eins og staðan er núna og verður áfram eftir að þetta frumvarp verður samþykkt — þegar minni hlutinn hleypir því hér í atkvæðagreiðslu sem þau greinilega ætlar sér ekki að gera en munu að lokum gera því að það er það sem þjóðin vill sjá — að þetta verða 33% af umræddri rentu. Það er bara verið að breyta mælikvörðunum. Það er verið að breyta mælikvörðunum (Forseti hringir.) sem hafa alltaf verið matsatriði, m.a. hjá síðustu ríkisstjórn.