156. löggjafarþing — 68. fundur,  23. júní 2025.

upphæð auðlindarentu.

[16:09]
Horfa

Hildur Sverrisdóttir (S):

Frú forseti. Ég þakka hæstv. forsætisráðherra fyrir svarið. Henni þótti spurning mín sérstök. Ég verð að segja að mér þótti svarið ansi sérstakt. Það voru engin svör við fyrirspurnum mínum, engin, nema jú, að vissulega sé þetta huglægt. Gott og blessað að þetta sé huglægt, en er þá ekki heiðarlegra að viðurkenna það í staðinn fyrir að nota auðlindarentu sem rök fyrir því að þetta muni ekki hafa nein áhrif á samkeppnishæfni? Þetta eru rökin sem er ítrekað haldið hérna fram og svo þegar maður spyr: Hver er auðlindarentan? Ja, það er auðvitað margt í mörgu. — Sérstök spurning. Mér þykir það æðisérstakt svar miðað við hvað er hérna undir.

Svo ef við tölum um þjóðarvilja, sem er vissulega það sem stjórnarliðar leita oft til sem svars og rökstuðnings þessa máls, þá vil ég fá að spyrja hér í seinna svari, seinni spurningu minni: Þjóðarviljinn sýnir líka að meiri hluta þjóðarinnar finnst sanngjarnt að veiðigjöld séu lægri heldur en allar þær mismunandi útfærslur þess frumvarps sem er hérna í hringavitleysu í þinginu. (Forseti hringir.) Allar útfærslu frumvarpsins eru hærri en meiri hluti þjóðarinnar (Forseti hringir.) telur sanngjarnt. Á ekki að hlusta á þann þjóðarvilja, bara þjóðarviljann sem hentar ríkisstjórninni hverju sinni?