upphæð auðlindarentu.
Frú forseti. Mér finnst reyndar stórfrétt ef minni hlutinn er farinn að viðurkenna tilvist auðlindarentu af því að hér hafa verið tekin stór samtöl um að auðlindarentan sé ekki til. Það hafa vissulega verið nefndar tölur í þessu samhengi, einhver hafa metið það á 70 milljarða, einhver hafa metið það á 90 milljarða, einhver hafa metið það á 50 milljarða. Einhverjir aðrir hafa sagt að eigið fé sjávarútvegsins hafi verið í kringum 100 milljarðar eftir hrun og var komið í fimmfalt þá tölu fyrir ekki svo löngu síðan. Einhver hafa vitnað í tugmilljarða arðgreiðslur sem engin önnur venjuleg fyrirtæki á Íslandi hafi séð. Einhver hafa vitnað í stórkostlegar fjárfestingar sem er frábært að sjá að er geta til að ráðast í í íslenskum sjávarútvegi.
Í lok dags þá vitum við öll hér inni að það er vel og gott svigrúm, borð fyrir báru hjá þeim fyrirtækjum sem um ræðir. Þessi ríkisstjórn brást vel við þegar það komu athugasemdir, áður en málið fór inn í þingið. Þingið er líka búið að bregðast við athugasemdum til þess að passa upp á minni og meðalstóru fyrirtækin. Þetta mál verður klárað inni í þessu þingi.