156. löggjafarþing — 68. fundur,  23. júní 2025.

auðlindarenta.

[16:13]
Horfa

Bergþór Ólason (M):

Frú forseti. Þetta var alveg stórmerkileg fyrirspurn, þessi síðasta, á milli hv. þingflokksformanns Sjálfstæðisflokksins, Hildar Sverrisdóttur, og hæstv. forsætisráðherra. Allt í einu er komið í ljós að ein kjarnaröksemdin fyrir þeirri nálgun sem viðhöfð er í því frumvarpi sem hér liggur fyrir er einhvern veginn bara fundin út úr loftinu þegar nýbúið er að halda því fram að það liggi hér hagfræðilegar kenningar frammi um það að ef menn halda sig innan 50% af auðlindarentunni þá hafi þetta ekki áhrif.

Frú forseti. Þetta er algjörlega stórmerkileg uppgötvun sem hér varð, sennilega fyrir algerlega tilviljun. Ef eitthvað ýtir undir það að stjórnarmeirihlutinn taki þetta mál til sín og vinni það í gegnum sumarið og komi aftur fram í haust þá held ég að þetta séu veigamestu rökin þrátt fyrir allt talnaruglið hingað til. Ef rökin er varða auðlindarentuna eru í raun ekki þau sem stjórnarliðar hafa haldið fram þá gjörbreytir það málinu. Ég vil bara biðla til virðulegs forseta um að taka þetta til alvarlegrar íhugunar og í öllu falli, ef svo verður ekki, að hæstv. forsætisráðherra komi þá hér til umræðunnar sem hefst innan skamms ef fram heldur sem horfir og bjóði þá okkur þingmönnum upp á að fara í andsvör við hæstv. forsætisráðherra. Þetta er grundvallarbreyting ef rökin er varða auðlindarentu eru fallin.

Virðulegur forseti. (Forseti hringir.) Ég bið um að þessu verði komið í kring. (Forseti hringir.) Annaðhvort verði málið dregið til baka og unnið betur fram á haustið eða þá að hæstv. forsætisráðherra komi hingað til umræðunnar þegar hún hefst innan skamms.

(Forseti (BHar): Forseti biðst afsökunar á því að klukkan er eitthvað að stríða okkur.)