veiðigjald.
Virðulegur forseti. Ég ætla að fá að ítreka það sem ég sagði hér áðan, ég er tilbúin að taka við afsökunarbeiðni frá hæstv. forsætisráðherra. Ég geri einfaldlega meiri kröfur til hæstv. forsætisráðherra heldur en annarra þingmanna sem koma hér upp í fundarstjórn forseta. Auðvitað falla stundum alls konar orð og hv. þm. Ásthildur Lóa Þórsdóttir var sökuð um það áðan að láta alls konar orð falla hér um þá sem eru ekki í sama liði og hún akkúrat í þessu máli. En þegar hæstv. forsætisráðherra kemur fram í viðtali í sjónvarpi allra landsmanna er lágmark að það sé talað af virðingu um löggjafarsamkunduna. Ég kann því mjög illa að vera sökuð um það að ég sé hér að standa vörð um hagsmuni einhverra fjögurra til fimm fjölskyldna í landinu af því að ég er að ræða um eitt stærsta mál ríkisstjórnarinnar.
Að því sögðu, virðulegur forseti, út af því að það voru önnur orð látin falla, þá langar mig að minna á atkvæðaskýringu hv. þm. Guðmundar Ara Sigurjónssonar sem hann fór með 12. maí þegar verið var að vísa málinu inn í atvinnuveganefnd, þar sem hann var að hvetja okkur til að lesa gögnin því hér væri svo sannarlega ekki verið að tvöfalda veiðigjöld (Forseti hringir.) út af því að einhver hefði haldið því fram í 1. umræðu um málið. En hvað kom svo í ljós í nefndinni? (Forseti hringir.) Var það ekki einmitt það sem lá fyrir í frumvarpinu sem var hér til 1. umræðu?